|
30.08.2006 00:12:32 / Hermann
Já veistu ég er hættur þessari vitleysu, síðan
er dauð og hefur verið og lengi. Metnaðar og Áhugaleysi fyrir
síðunni er aðalástæða.
Takk fyrir lesniguna.
»
21.08.2006 00:21:22 / Hermann
Djöfull er ég stemmdur, ég næstum hyper. Skólinn að byrja og þá eru
flestir ánægðir. Maður er næstum jafn fegin að byrja í skólanum á
haustinn og maður er fegin að losna í mai. Að skólamálum slepptum
þá kíkti ég á ómenniguna niðrí bæ. Ég verð frekar deprimeraður að
fylgjast með þessu, haugafull börn í götunni og ef þau stóðu í
labbirnar var verið að lemja það í götuna. Ég er alveg búinn að sjá
það að það er ekkert vit í því að fara edrú niðrí bæ. Besta að vera
smá ölaður og þá er maður ekki að láta þetta fara í taugarnar á
sér.
Svo eru náttla stórfréttir vikuna að Stjarnar lendir með Gróttu í
riðli á Reykjavíkur hraðmótinu næstu helgi. Spurnig hvort að Jölli
Njalli og félagar verði rasskelltir. Spennó.
Quote dagsins:
"Weather forecast for tonight: Dark."
George Carlin
Siggi stormur ætti að taka þetta upp svona til að hafa rétt fyrir
sér einstaka sinnum.
»
03.08.2006 01:27:47 / Hermann
Pistlahöfundar landsins hafa keppst um að gera lítið úr Rockstar
keppninni og um leið upphefja Magna kjéllinn yfir þetta allt saman.
Ég Skrifa alveg undir að Tommy sé ekkert uppá sitt besta og efast
svo sem eins of fleir hvort að það hafi verið eitthvað sérstakt.
Hinir 2 hafa samt alveg eitthvað í kollinum. Jason og Gilby hafa
verið orðaðir við bönd eins og Guns´n´Roses og Metalica. Þessir 2
virðast vita hvað þeir vilja og eru með þetta eins og maður segir.
Magni er að standa sig strákurinn. Fyrir mitt leiti gef ég honum 3
þætti í viðbót og þá fáum við að sjá kallinn í botnsætunum og þurfa
fara berjast fyrir sínu. 5 þættir þá er hann dottinn út.
Verzlunarmannahelginn. Tjónaðar tjaldsúlur, rifnir
rennilásar, götóttar gallabuxur og bensínlausir bílar verða í
aðalhlutverki hjá ykkur flestum um þessa alíslensku subbuhelgi.
Þótt þið ætlið að standa í þessum pakka hafði ég sjálfur hugsað mér
að eyða helginni í eign rúmmi og heilum gallabuxum þó svo megi gera
sérstaka undanteknigu á því fyrrnefnda. Jú jú Innipúkinn er víst
málið, ég er ekkert fullur efasemda og þetta verður magnað.
Krístína er búinn að lofa mér Nasa stemnigu í A-classa. Við skulum
sjá....
Get ekki hætt áður en að þakka SigurRós fyrir að skapa ólýsanlega
stemmnigu á Miklatúni/Klambratúni Chilluð fjölskyldustemmari sem
allir nutu í botn held ég bara. Og hvað er málið með að það séu
ekki neinar almennigsrusla tunnur á Íslandi, ekki nema von að fólk
hendi súkkulaði og sígarettum á jörðuna Þeir einstaka menn sem
leggja á sig langferð við leit af ruslatunnum eru með hálfbráðnað
súkkulaðiði í höndunum eða hálfbrennda hendi eftir sígarettuna
þegar loksins koma uppá sorpu í grafarholti við leit af einni
skitinni ruslatunnu.
Villi nýkjörinn í hásætið ætti að fara dúndra upp ruslafötum í stað
þess að hópa saman reykvíkingum á frídögum sínum til þess að týna
rusl.
»
25.07.2006 19:05:58 / Hermann
Eftir góða pásu frá klakanum er maður að komast inní rútínuna aftur
og Spánn verður innan tíðar framandi sólarströnd. Eftir heimkomuna
tók við stíf vinnuvika þar sem varla gafst tími í nægjilegan svefn.
Núna þegar vinnan er kominn í rólegheitinn fannst mér upplagt að
blogga aðeins.
Mig langar bara að byrja á því að þakka ykkur fyrir þolinmæðina, ég
blogga ekki sem vikum skiptir en samt mæta þessir 14 til 17 á dag
og kíkja. Ég veit ekki hverjir þið eruð en bara gott mál.
Helduru að maður hafi ekki farið og heimsótt Barðarströndina í gær
og nælt sér í eitt stk ökumat. Örn Öku eða Flúðalúðinn eins og hann
hefur verið kallaður reglulega í gegnum árinn fór með mér í bíltúr.
Eins gott að drífa sig að fá Fullanðarskirteini núna þegar maður er
búinn að vera punktalaus í heilt ár  Já punktalaus og aldrei verið
sektaður af lögreglunni.. Ennþá
Ég verð með frekari fréttir og vonandi öllu meira kómískra blogg í
síðasta lagi á fimmtudaginn. Sæl að Sinni.
aldrei að vita að maður virki quote dagsins sem naut gífurlegrar
vinsælda.
»
01.07.2006 16:07:49 / Hermann
 Einhver
sagði einhvertíman : Á Spáni er gott að djamma og djúsa
diskótekinu á. Verð bara að vera sammála. Fór eimmit á eitt
slíkt í gær í ólempíuþorpinu í Barcelonaborg. Ólempíuþorpið er
alveg við stöndina svo við helltum aðeins í okkur áður en við
héldum á skemmtistaðina. Á stöndinni var glatt á hjalla
þægilegt veður; 26 gráður og smá vindur. Kl rúmlega 1 var
aðeins einn bjór eftir og skandinavarnir í hópnum voru
áhveðnir að síðustu dropar bakkusar skildu ekki falla
neinstaðar en í maga alvöru víkinga. Norður-Ameríku fylkingin
var ekki par hrifin og tókst einum drengnum að hrifsa bjórinn
úr höndum minna manna og hleypur eins og skræfa á brott. Það
vill nú ekki betur til en svo að hann missir bjórinn beint á
eina steinin á ALLRI ströndinni og brýtur bjórkvikindið.
Drengurinn fer niður á hnéin og byrjar að biðja til bjórsins
(ekki spurja afhverju) Ég sem er núna nokkrum skrefum á eftir
honum hægi ferðina og og geri mig líklegan til þess að stoppa
fyrir aftan þjófinn. Það vill nú ekki betru til en svo að
akkurat í þessu stendur þjófurinn upp með og kastar sér aftur
fyrir sig. Þar stendur minn, alveg saklaus. Búið að stela og
brjóta síðan bjórinn minn. Það var í takt við mína lukku þetta
kvöld að Robert stangaði höfðukúpunni beint í augað ég mér svo
ég var ekki samur á eftir. Einhver sagði einhvertíman: Mynd
segir meira en þúsund orð:
http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=8414832&uid=3840774
»
05.06.2006 21:44:08 / Hermann
Ég:
Fór á Red Hot Chilli Peppers tónleika, var fremstur eftir 4 tíma
bið fyrir framan höllina. 20 þúst manns.
Vann í Base Taninu í 5 kls í gær Vann Joey 3 í pool( hann er með
borð heima hjá sér)
Og og systir mín unnum Joey og systur hans í Foosball (hann er líka
með foosball borð)
Fór á Primavera Sound festivalið í Barcelona á laugardaginn. Allt
mjög stórgert.
Og Joey erum einir heima með systrum okkar þar sem foreldrarnir
eru í Istanbúl.
Sá um að selja 11 bjóra á römblunni, Evra á bjórinn, kom samt út í
gróða.
Er ekki búinn að klippa á mér hárið eða kaupa nýja skó síðan ég kom
(níu mánuðir)
Ætla í útleigu upp með Costa Brava ströndinni í vikunni.
Ætla fara sofa núna, verð að vakna og vinna í taninu.
Finnst færeyska Cool: http://b2.is/?sida=tengill&id=170286
»
29.05.2006 14:34:50 / Hermann
Jæja þá er handboltaseasonið búið og nú fer að slakan á æfingunum.
Við lékum í undanúrslitum í Katalóníubikarnum en töpuðum með 2
eftir spennandi leik. Frekar svekktur og ætla ekki að velta mér
meira uppúr því.
Þar sem skólinn er búinn fylli ég daga mína með svefni strandferðum
og sælgæti, nei kannski ekki alveg. Það er stutt í Red Hot
Chilipeppers og Tyler strákur sem á heima í Madrit er kominn til
barcelona til þess að fara með okkur á tónleikana.
Síðan held ég að síðustu vikunum hérna í Katalóníu verði bara eytt
á ströndinni að vinna í Base Taninu. Grunar mig að næturlífið verið
stundað og fleira um skemmtileg heit.
Síðan verð ég að benda ykkur einn betri brandara sem ég hef
séð:
Málið er að eftir hverja flugferð fyllir flugmaðurinn út svokallað
"gripe sheet" sem flugvirkjar fá síðan í hendur og yfir fara vélina
fyrir næsta flug. Flugvirkjarnir skrifa síðan það sem var gert við
athugasemd flugmannsinns. Of fyndið
www.lagg.is/5aur.txt
»
11.05.2006 17:00:31 / Hermann
Ég hef enganveginn nennt að skrifa inná síðuna undanfarið en ætla
taka mig taki þar sem skólinn er að klárast. Ég veit ekki hversu
margir tóku eftir því en að síðustu færstlu var eytt vegna þess að
lesendur höfnuðu henni hreinlega enda eitthvað sem ég byrjaði að
skirfa í skólanum og fékk ekki að klára sökum strangra reglna sem
gilda um tölvu notkun nemenda: Sem bannar meðal annars alla
internetnotkun.
Já, síðan er búið að taka nýja reglu í þessum belssaða skóla í ár.
Eini inngangur skólans er einugis opinn 10 min fyrir fyrsta tíma, í
frímínótum og eftir síðasta tíma. Þetta þíðir að ef maður vill
komast út á milli tíma þarf maður að þekkja manninn í búrinu með
buzz takkan sem opnar hurðina. Ég spurðist fyrir um þessa frábæru
reglu og kom í ljós að skólastjórinn tók þessa áhvörðun uppá sitt
eindæmi til þess að reyna hindra fólk í því að fara út og reykja á
milli tíma, og nú erum við ekki að tala um sígarettur.
Við spiluðum í bikarnum í gær heljarinnar leik. Reyndar ekkert
heljarinnar, unnum 37-21 nema hvað að þegar ég kom inná á 7 mín
gerðist nokkuð áhugavert. Ég geri mig líklegan til þess að skjóta
en sendi hann á miðjuna, í því kemur línumaðurinn út úr vörninni og
slær mig drulluföstu hnefahöggi í sólarplexusin. (Staðurinn þar sem
rifbeinin hætta að verja brjóstssan) Þarf varla að taka það fram að
ég lét ekki sjá á mér sársauka merki. Ég fer í vörn og línumaðurinn
stillir sér upp í block og þegar skyttan þeirra skítur. Kýlir hann
mig aftur helmingi fastar aftur á sama stað og þar sem ég lá
andardráttarlaus stendur hann yfir mér og segir mér að næsta högg
verði í andlitið.
Áður en lengra er haldið verð ég að útskýra að ég var nokkuð
ánægður með strákinn, þeas hann sem kýldi mig. Já, ég hef verið að
kvarta undan pussu bolta allt árið en þarna var einhver nagli sem
gerði eitthvað að viti.
Eftir að ég stend upp og næ andanum tekur þjálfarinn þeirr leikhlé
enda staðan orðinn 1-7 fyrir okkur. Eftir eitt hraðaupphlauphjá
okkur stöndum við félagarnir,línumaðurinn og ég, og hann er að
blocka mig og einhver skyttan hjá þeim skýtur á markið. Rétt áður
en ég hleyp af stað í hraðaupphlaup gef ég honum nett fast
olnbogaskot í andlitið. Verð að viðurkenna að ég var nú ekki að
miða í andlitið enda er það óíþróttamannslegt. ég var að miða á
hálsinn á honum, þeir eru bara allir svo djöfull litlir hehe.
Leikurinn var stoppaður þar sem línumaðurinn litli lá í gólfinu
með vægan skurð í andlitinu og guð má vita hvernig það gerðist,enda
ég kominn vel yfir miðju á leið í hraðaupphlaup. Ég held ég hafi
aldrei séð lítinn mann svona reiðan. Ég byrjaði að verða órólegur
þegar hann var kominn á harðarsprett í áttina að mér en mínir menn
sá til þess að ekkert ósæmilegt gerðist í bili.
Og hér er kickerinn...
Vinur okkar litli línumaðurinn varð svo reiður út í dómaran fyrir
að hafa ekki séð þetta atvik sem gerðist náttla engar sannanir
fyrir nema þessi játnig mín hér, og vona ég innilega að hvorki
litli línumaðurin né enginn hjá spænsku rannsóknarlögregluni lesi
eða skilji íslensku, að hann var rekinn beint út af með rautt.
Segja svo að glæpir borga sig ekki....
»
23.03.2006 21:04:02 / Hermann
"Estoy cansado de salir de noche y ver siempre la misma gente" Ég
vitla í ágætis lag með manninum á bak við "El canto del loco" en á
íslenku myndi þetta hljóma sem:
Ég er þreyttur að fara út á kvöldin og sjá alltaf sama fólkið.
Næturlífið er að vera frekar einsleit og hefég áhveðið að taka til
minna ráða og skella mér til Barcelona yfir helgina. Þó að það sé
ekki einugisminni þekktu framtaksemi (hehe) að að leggja upp í
þessa ferð þá á ég ekki síður hrós skilið.
Jú afs helgi á morgun og allir skiptinemarnir í Katalóníu hittast á
morgun og eyða helginni í að spjalla um lífiðog tilveruna eða
eitthvað í þá áttina. Ég veit ekki alveg um skemmtana gildið en við
höfum gert ráðstafanir til þess að, krydda, skulum við segja þessa
orieantation eins og þetta heitir víst. Meira um það síðar.
Maður er að gymast núna þessa dagana og rakast á dálítið sem ég sé
ástæðu til þess að íhuga aðeins frekar.Karlmenn ef karlmenn má
kalla á öllum aldri og þrepum þjóðfélagsstigans virðast stunda það
mikið að frjarlægja hárinn af fótleggjum sínum. Ég viðurkenni að ég
var meðvitaður um þennan sið hér við miðjarðarhafið. Í huga mínum
hingað tilhefur kennkynið verið meira í þessum bransa en þetta
virðist vera snúast við. Já snúast við. Komst eimmit að því um
daginn að flest kvennfólk hér er ekki mikið í þessum
hárfjarlægjingar aðgerðum á veturnar þegar síðbuxurnar eru við
líði.Svo um þessar mundir,Þegar vorar, byrja þær aftur af þessu. Ég
hef kannski hugsað allt of mikið um þetta en bændur slá grasið sitt
og þurrka.
Það hefur löngum verið kallað að hausta. Má þá ekki segja að
kvennfólk Katalóníu séu að vora?.. Það er síðan allt önnur spurnig
hvort að vorið vaki fleiri langanir í kvenfólkinu heldur en að raka
á sér lappirnar.
Að lokum Ísland er hefur álíka marga íbúa og Barbados og Bahamas,
leitt að við höfum ekki svipað verðurfar.
»
23.02.2006 18:13:48 / Hermann
Maður hefur ekki verið allt of
duglegur að blogga uppá síðkastið enda þessi tölva ekki
í mikið betra ástandi en Ariel Sharon.( Með fullri
virðingu fyrir tölvunni) En núna er þó í sjónmáli lausn á þessum
tölvuvanda en meira um það síðar.
40 afmælisveisla
móðursystur minnar var haldin í ónefndu húsi í fjöllunum eins og
svo margt. Ég var vakinn uppúr hádegi á laugardagsmorgni og sagt að
nú væri mál að klæða sig í svartar buxur, hvítan skyrtu og mér
afhentur svartur hattur og rauður klútur. Þeir sem ekki enn hafa
áttað sig þá var hér í undirbúnigi Katalónst flamengó-afmæli.
Katalónst flamengó er í sjálfu sér jafn mótstæðukennt og Kínverskt
þorrablót. En langþráður draumur afmælisbarnsins rættist samt sem
áður. “Mamma” saumaði flamengókjól á afmælisbarnið og allir boðaðir
í áðurnefnt hús í viðeigandi klæðnaði uppúr 2. Afmælisbarnið var
sótt alveg grunlaust um hvað var í undirbúningi. Hestakerra bar
barnið upp að húsinu og eftir það hófust veisluhöldinn. Veislan var
svo sem ekki mikið frábrugðin öðrum sem maður hefur verið
viðstaddur hér í katalóníu þrátt fyrir flamengó þemað. Ég ætla ekki
að fjölyrða frekar um þetta en læt væntanlegar myndirnar tala sínu
máli.
Eins og fleiri var ég spenntur að sjá
viðureign Íslendingaliðsins Chelsea og Barcelona.
Ég var aldrei í neinum vafa með hverjum
ég stóð. Barcelona skorði fyrsta mark leiksins þegar Motta (já hann
heitir motta) skoraði fyrir miðjan fyrrihálfleik en þó í vitlaust
mark. Greinilegt að einhver miskilnigur var á ferð með
vallarhelming því að John Terry fyrirliði Chelsea svaraði í
seinnihálfleik með glæsilegum skalla einnig í vitlaust mark.
Eto´o tókst einum leikmanna að setja boltan í rétt mark þegar vel
var liðið á seinni hálfleikinn. Úrslitinn 1-2.
Ég verð samt að minnast á það í
hálfleik þurfti ég að skipta um áhorfsstað og hljóp í gegnum
borgina til að ná seinni hálfleiknum og það var ekki sálu að sjá á
götunum allir einbeyttir að þessu, eða undanúrslita leik kvk í
krullu sem fór fram á sama tíma. Ég skal ekki segja. Nú er bara að
bíta í skjaldarrendur og taka þá á útivelli.
»
07.02.2006 14:54:42 / Hermann

Ég sé mig knúinn til að birta þessa mynd til þess að
styðja stefnu Jyllands-Posten og ekki síst við mál og tjánigar
frelsi sem hefur kostað sitt og við munum ekki gefa það eftir svo
auðveldlega.
Ég átta mig á því að myndlíking Muhammed spámans getur sært og
biðst ég afsökunar á því.
»
06.02.2006 18:32:48 / Hermann
Þar sem ég er alvöru Eurovision
barn hef ég fylgst með gangi mála með Eurovisionmálum okkar
Íslendinga þessa daga. Ríkissjónvarpið hefur lagt mikið í
forkeppni að þessu sinni og þett þetta í smá Idol búning. Það er
ljóst að Þorvaldur Bjarni saknar Idol fílingsins soldið en hann
á eimmit án efa mest áberandi lagið í úrslitunum 18 febrúar.
Lagið Til hamingju
Ísland í fluttnigi hinar litríku Silvíu Nætur komst áfram á
þriðja og síðasta undankeppniskvöldinu 4 febrúar.
Ég sá frammistöðu Ágústu Evu
Erlendsdóttir á sviðinu og mér líkaði
þetta. Íslendingar hafa verið að rembast við að vinna þessa keppni
síðan að Gleðibankinn fór og lenti í 16 sæti með 19 sitg árið 1986.
Páll Óskar fór með grínframlag árið 1997 og lenti í 20 sæti með 18
stig. Það var ljóst að dómnefndinni sem var að störfum árið 1997
líkaði ekki Erótíska fluttnigs Palla. Það er ekki á allra vitorði
að þetta ár var prófað símakosnigakerfi (sem síðar tóf við af
dómnefndinni) í að ég held 10 löndum þar lenti þetta ágæta framlag
Páls Óskars í 6 sæti.
Er ekki kominn tími til á annað grínframlag frá okkur Íslendingum
Lagið hans Palla Minn hinsta
dans var alls ekki slæmt lag og það er Til hamingju Ísland svo sem
heldur ekki.
Ég held að stóra
spurninginn 18 febrúar er hvort Íslendingar séu að fatta grínið.
Þar sem ég kann að meta smá grín segi ég: Til hamingju Ísland með
þetta tækifæri til að gera smá grín að sjálfum sér.
»
04.02.2006 12:58:24 / Hermann
Jææææja, eins og Logi Bergmann
sagði alltaf í Gettu Betur spurnigarkeppninni.
Gaman að segja frá því að það
er aðeins farið að hitna í veðri. Hætt að vera svona skítkalt
á morgnana, kvöldin og næturnar ef út í það er farið. Nú
getur maður klætt sig á morgnan og þarf ekkert að hugsa um
það meira. Ekkert eitthvað stripp atriði í gangi þegar kl
gengur eitt eða tvö.
Leikur á eftir eins og alla
laugardaga. Smá video í gær, verið að renna yfir taktíkar hjá
hinu liðinu og hvaða kerfi væri nú besta að nota á þetta
sterka og snögga lið. Við komumst að því á þessa 6:0 vörn
þeirra væri best að nota Tékka, Svartan, 6, og 3.
Maður er svona næstum kominn
með öll kefinn en guð minn góður þau eru mörg.
0, 1, 2, 2+, 3, 4, 5, 6, 8, 10,
blár, svartur, hvítur, gulur, bar, á barnum, kanína, feitur
og 4 í viðbót sem ég man ekki í augnablikinu.
Morgun er ég að fara uppí
sumarbústað í Colera og snæða þar smá hádegisverð. Tekur
eflaust allan daginn
»
19.01.2006 17:56:16 / Hermann
Jæja ég er að hífa mig uppúr veikindum
síðustu daga og er á góðum batavegi svona rétt fyrir helgina

Undur og stórmerki. Í gær kvöldi
áhvað ég að fara út í bakgarðinn og fá mér smá frískt loft, lokaði
á eftir mér rennihurðinni og andaði að mér fyrsta fríska loftinu í
3 daga. Um leið og ég kom út leit ég upp og sá ekkert annað en
stjörnuhrap. Fyrsta sinn sem sé stjörnu hrap síðan ég lá í grasinu
í Danmörku og sá mörg á kverju kvöldi.
Ég held svo sem að það séu ekkert
færri stjörnuhröp á Íslandi heldur en annarstaðar. Það sem ég held
er að heima hjá sér sé maður svo upptekinn að sjálfum sér og gefur
sér ekki tíma til að líta í kringum sig og átt sig á því hvað sé í
kringum mann.
Að gömlum sið óskaði ég mér og hélt
aftur í rúmið.
En að öðru. Spurnig
dagsins:
Hvað borðaðir þú í
gærkvöldi?
»
17.01.2006 20:07:06 / Hermann
Ég held að það sé kominn tími á bloggerí. Rúntínan kominn á fullt
þótt ég sé illahaldin í dag, kvalinn af magapínu. Síðasta vika rann
í gegn tíðindarlaus og helgin var róleg. Fyrsta leik eftir jól var
frestað og verður leikinn annan laugardag. Venjulegur undirbúnigur,
æfingarleikir og smá púl eru enn á dagskrá í þessari viku og næstu.
Spurnig dagsins: Hvernig er veðrið?
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|